|
liljabirgisdottir
|
read my profile
sign my guestbook
Name: Lilja Location: Iceland Birthday: 1/4/1985 Gender: Female
Interests: Biblía, myndavél, tónlist og ferðalög Expertise: Ljósmyndun og ljósmyndavinnsla Occupation: Myndatakari, ritari og vinur Industry: Fjölmiðlun
Message: message meEmail: email me Website: visit my website
Member Since:
10/11/2005
|
|
| Vá, hvílík snilld, ég ákvað að kíkja á bloggið hjá Kristínu Jónu svona til tilbreytingar ;) síðan kíkti ég að gamni á gamla bloggið mitt (vá, hvað ég hlýt að hafa ekkert að gera) og las síðustu færslu. Þær voru nú bara þokkalega skemmtilegar hjá mér, þótt ég segi sjálf frá.
Þetta er bara ótrúlega skemmtilegt allt saman, skrýtið að kíkja svona 1 ár aftur í tímann og sjá hvað hefur breyst, sumt til hins betra, annað til hins verra, þó það sé nú í færri kantinum.
Annars verður skondið að sjá hvort einhver lesi þessa færslu og commenti  | | |
| Jæja gott fólk, nýjungarnar láta alltaf á sér kræla...
Ég rakst á flott bloggsíðuforrit sem mér líst afar vel á og er afar klassískt að hafa skoðanakönnun um hvað fólk mælir með...kíktu á þetta og segðu mér hvað þér finnst,
lily.bloggar.is
Láttu mig vita í commenti þarna eða á þessari síðu...
username: gestur password: gestur
| | |
| Já, sumarið er komið og grundirnar gróa... hlakka samt svo ótrúlega til 1.júní, oh happy day! Þá mun ég að öllum líkindum byrja að vinna við stuttmyndina...vúbbdídú! Ég verð að segja að ég held að þetta sumar eigi eftir að vera ljúft, búa í húsi sem er alltaf með mat, eða allavega kökur, vinna við fjölmiðlun, vinna með skemmtilegum gaurum, sól og sumarylur, vera nokkurn veginn sjálfs síns herra, vá of ljúft maður... hehe...
Síðan verð ég að segja ykkur... Andri Ómars kíkti hingað á spilakvöld á mánudagskveldið var og var eitthvað að tala við Jóhannes, síðan kemur það upp á yfirborðið að hann er að fara að taka upp auglýsingu á miðvikudaginn fyrir Inn-X innréttingar, Andri spyr Jóhannes hvort hann vilji ekki vera með og Jóhannes jánkar því, síðan eins og mér einni er lagið, þá spyr ég í djóki hvor ég megi ekki líka vera með og Andri bara "Jú, endilega, mig vantar helling af mannskap, er bara ekkert með rosalega mikinn pening"...ok, cool, er ég að fara að taka upp auglýsingu, geðveikt! Siðan segi ég Andra að ég komist reyndar ekki fyrr en rúmlega 5, ég sé að vinna, hann segir að ef ég geti komið klukkan 2 þá virki þetta, annars ekki. Eftir það þá gangi þetta eiginlega ekki. Ég síðan spyr hann um hvað ég fái fyrir þetta, þá nefnir hann ágætis upphæð, ég hringi í bossann minn og múta henni með því að ég vinni af mér frá 9-13 um daginn, síðan fór ég í tökur klukkan 14. Ég fékk titilinn best boy í lýsingu, s.s. aðstoðarmaður ljósamanns. Þetta var frekar cool set-up, tvö stór ljós, nokkrir litlir "krúttlegir" kastarar og track (svona lestarteinar, setur vagn á þá og ýtir fram og aftur, mikið notað við kvikmyndagerð) Við vorum að í rúmlega 18 klst., jebb, þú last rétt, 18 klst. þannig ég kom heim...you do the math, en þetta var svo ótrúlega gaman, vá, ertu að grínast! Fyndið hvernig allir voru ótrúlega hressir og með brandarana og skotin allan daginn og kvöldið til svona 2, eftir það fóru allir að grána og verða enn húmorslausari, nema Steindór, hann er alltaf hress Ég lærði reyndar mest á þeim 40 mínútum þegar Jóhannes, sem var ljósamaðurinn, fór frá til að bera út, þá fékk ég að færa til og stilla ljósin, yeah, luvin´ it...
Annars var þetta nú nokkuð gott team sem var að vinna þarna... Guðjón...leikstjóri Andri...framleiðandi Eiki...camerumaður Jóhannes...ljósamaður Hafliði...runner Steindór...allt sem hægt var og að lokum... Lilja...best boy! yeah
Já, annars hef ég bara verið róleg, er alltaf að klippa og kósý....sweet, allt nema hvað bakið á mér fer í klessu við þetta, en oh jæja, dýrð sé Guði fyrir sjúkraþjálfara 
Ætla að lokum að setja inn nokkrar myndir af okkur nokkrum sem kíktum á Ruby Tuesday um daginn og ég vígði nýja minniskortið í myndavélina mína...
 Me posing, ég get bara ekki hætt að afþakka fyrirsætutilboðin...úff
 Jóhannes í þungum þönkum, eða bara pæla í tómatsósunni 
 Þær eiga í sama vanda og ég, get ekki hætt að afþakka fyrirsætutilboð, so cute...
Síðan var Sindri þarna líka, en ég er víst búin að hlaða minn skammt af myndum í þessum mánuði inn á xanga-síðuna...því miður 
Ekki gleyma, ef þið viljið skilja eftir skilaboð: Username: gestur Password: gestur
Koma svo, láttu í þér heyra... | | |
| Gleðilega páska allir saman...byrjum á smá myndum
Fyrir Kristínu Jónu, sem er minn dyggasti lesandi...
 Rakel systir hennar...náði mynd, gegn hennar vilja 
Fyrir ykkur hin sem veltið því fyrir ykkur hvar ég verð næstu vikurnar

My workingspace, þarna verð ég að klippa næstu vikurnar, heimsóknir vel þegnar, en allir verða að vera afar umburðalyndir fyrir því að ég fer INN í tölvuna  Jæja ég byrjaði daginn á því að útbúa ferskan ávaxtasafa svo ég fengi nú ekki í magann af páskaegginu, en síðan leitaði ég að egginu mínu, það var falið inní þvottahúsi. Eftir það borðaði ég hluta af egginu og síðan fékk ég í magann. Greinilegt að páskarnir snúast nú ekki alveg um þetta "blessaða" páskaegg. Páskarnir snúast um svo allt, allt annað.
Páskar okkar kristnu snúast um þann atburð sem gerðist fyrir rétt tæpum 2000 árum. Þó svo páskahátíðin sé mun eldri en svo er komin frá gyðingatrúnni, hef ekki nógu vel kynnt mér það svo ég get ekki skrifað um það. En sem sagt það var Jesús Kristur sem var krossfestur og reis upp á þessari hátíð. Á skírdag átti hann síðustu kvöldmáltíðina með lærisveinum sínum, síðan um kvöldið fara þeir í Getsemane til að biðja og þar er Jesús handtekinn. Föstudaginn langa eru réttarhöldin haldin yfir Jesú og hann pyntaður, big time, eftir það er hann krossfestur. Eins og fram kemur í Bibliunni þá var þar rómverskur hermaður sem stakk spjóti í síðu Jesú og út rann vatn og blóð. Talað er um að eftir að manneskja hefur verið dáin í einhvern tíma, þá skilur blóðið sig og verður að vatni og blóði, en það þarf að líða smá tími. Þarna hafði Jesús aðeins verið dáinn í smá tíma, en í raun hafði hann verið að deyja afskaplega lengi. Hann var pyntaður á svo hrottafenginn hátt, bar krossinn, með líkamann í flakandi sárum og var svo negldur á krossinn, síðan hékk hann þar einhverja stund áður en hann lést. Á þessum tíma var hann að taka á sig syndir okkar, syndir heimsins. Á þessum tíma var engin fyrirgefning, þannig að þessar syndir fjarlægðu hann frá Guði föðurnum, þess vegna hrópar hann á krossinum, Guð minn, Guð minn, hví hefir þú yfirgefið mig? Hann fann að Guð hafði farið, ástæðan fyrir því er sú að Guð er heilagur og fullkominn, því getur hann ekki umborið syndina. Jesús dó og fór til helvítis, því hann varð syndari...þar sigraði hann dauðann og reis aftur upp á þriðja degi.
Nú ætla ég að taka ykkur i smá guðfræði. Í gamla daga, fyrir tíma Jesú, þá voru gyðingarnir Guðs útvalda þjóð. Þeir voru samt alveg jafn miklir syndarar og jafn spilltir og við hin, þannig að Guð sagði þeim að fyrir hverja þá synd sem þeir drýgðu, þurftu þeir að færa fórn. Blóðið úr dýrinu hreinsaði syndina. Þeir þurftu að nota heilbrigð og fullkomin dýr, þau máttu ekki vanta eitt auga eða þess háttar. Guð færði sjálfur fyrstu fórnina, en það var fyrir Adam og Evu, þau syndguðu, hann sendi þau út úr aldingarðinum og fórnaði dýri til þess að hylja nekt þeirra, skömm þeirra, synd þeirra. Þau sáu að þau voru nakin og skömmuðust sín, vegna þess að þau höfðu hlotið aukna vitund með því að borða af skilningstré góðs og ills. En þannig að fyrsta dýrafórnin var færð af Guði, síðan þá þurftu gyðingarnir alltaf að vera að fórna hægri, vinstri til þess að breiða yfir syndir sína. Guð hafði þó tekið þá ákvörðun að senda son sinn á jörðina til að binda enda á þetta endalausa fórnarvesen.
Jesús kom til jarðar, hann var lýtalaus, þó ekkert fallegasti maður í heimi, stendur í Biblíunni, hann var syndlaus, sama hvað æðstu prestarnir reyndu að klína syndum á hann, þá var hann syndlaus. Þess vegna gat hann dáið fyrir syndir okkar, hann var þessi ultimate-fórn! Hann var maður, tók á sig allar syndir okkar hinna til þess að við gætum verið nálægt Guði. Ég sé þetta oft fyrir mér sem svo að ég standi og er grútskítug og utan um mig er svona þynna úr blóði og þegar Guð horfir á mig með þessa blóðþynnu utan um mig þá sér hann mig alveg tandurhreina. Hann sér ekki hve skítug ég er, þess vegna getum við talað saman og verið saman.
Það eina sem fólk þarf að gera er að meðtaka það sem Jesús gerði fyrir okkur, játa hann sem frelsara sinn og Drottinn og þá er maður frjáls, þá hefur maður þessa "blóðþynnu" í kringum sig og er hreinn frammi fyrir Guði.
Gleðilega páska kæri lesandi og vona að þessi hugleiðing hafi gefið þér einhverja innsýn í það sem Jesús gerði fyrir þig fyrir tæpum 2000 árum.
Ef þú vilt skilja eftir comment getur þú notað username: gestur password: gestur | | |
| Jæja, nú er kjellingin komin með myndavél...
fylgist með á www.picturetrail.com/liljabirgisdottir og skoðið nýjar myndir  | | |
|